Guðmanninn

Dirtbike rider member!!

06.06.2008 11:37:13 / gudmann_b

Sveinsprófið búið í bili.

Jæja, ég var að fá út úr verklega hluta sveinsprófsins og það gekk bara ágætlega. Mér leist ekkert of vel á þetta því að ég náið ekki að klár einn hluta prófsins sem er stýrirás en svo var hitt bara allt í lagi þannig að ég komst bara vel frá þessu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 13:46:47 / gudmann_b

Fréttabréf frá Kristnibraut 37

Heil og sæl öll sömul.  Héðan af Kristnibrautinni er margt að frétta enda ár og öld síðan síðasta fréttabréf var sent út á hinn margumræddan veraldar víða vef (WWW). />

STRÁKURINN:  Hann stækkar og STÆKKAR, var í skoðun í vikunni og er hann orðinn einir 72cm enda á milli og vóg hann 8,835kg og sennilega ekki langt í að hann taki á mann hælkrók ef ég stríði honum ;)  svo var hann að fá göngugrind og er svona að læra á þetta, bakkar hérna á næsta hlut og kvartar svo.  Hann er við hestaheilsu og virðist bíta af sér allar flensur og svo er hann svo almennilegur við ma og pa að hann sefur allar nætur frá hálf átta til sex á morgnana þannig að það er ekkert nema gott af honum að frétta. />

STELPAN:  Hún er alltaf jafn mikil prinsessa og maður getur bara varla beðið eftir að vekja hana og sækja hana á leikskólann, það er alltaf svo mikið líf og fjör í kring um hana.  Hún er búin að eignast vinkonur í stigaganginum sem eru nú reyndar aðeins eldri en hún en það virðist ekki skemma.  Við höfum verði að reyna að hjóla í leikskólann á morgnana en það er nú eins með það og annað að þegar það er í boði þá hefur hún minnstan áhuga á að hjóla en hún er nú reyndar enn með hjálparadekk þannig að hún er spólandi upp brekkur og getur illa beigt niður brekkur og þar að auki á of litlu hjóli.  En þetta stendur allt til bóta, við kaupum nýtt hjól þegar hjálpardekkin fjúka. />

VIÐ: já af okkur er nú svona hitt og þetta að frétta,  Dagný er birjuð í ræktinni ásamt vinkonum sínum Silju og Söndru og gengur bara vel að ég held. Ég er að fara í sveinspróf í birjun júní og er í upprifjun núna,  tók mér bara mánaðar fæðingarorlof til að hella mér í þetta en það veitir ekki af því enda komið gott lag af riki á skóla lærdóminn sem þurka þarf af.  Við fengum okkur annan bíl um daginn, losuðum okkur við peugotinn og fengum okkur skoda oktavi elegans árg 2001, alveg ágætis kerra. />

Nýja hobbíið!!!  Já ég lét ekki verða af því að kaupa það sem mig hefur alltaf langað í en það er flugvél... en við skulum nú halda okkur á jörðinni þannig að mig hefur alltaf langað í fjarstíða flugvél en ekki látið verða af því, þangað til Dagný keypti handa mér eitt stikki í afmælisgjöf.  Þetta er rafknúin frauðplast vél með um meters vænghafi sem ég... hún fékk á flugmodel.com, fjögurarása og allt.  Ég og tók jómfrúarflugið á sunnudagskvöldið og það gekk mjög vel,  hún fór á loft, flaug vel og hrapaði.... alveg eins og ég bjóst við :)  hún fékk einhverja leiðindar vindhviðu í rassgatið og steiptist niður á fullu gasi.  Það verður viðgerðarkvöld í kvöld hjá vini mínum sem vill ekki gangast undir nafni sem flugmodelmaður af ótta við fordóma gagnvart fullorðnum mönnum sem leika sér með dót.... en þetta er alveg geggjað gaman.

Eva systir mín er núna í Danmörk að fríka út,  það er víst alveg bilað gaman hjá henni í sól og sumaryl.  Hlakka til að heira ferðasögu frá þér Eva mín. />

Það er eflaust frá fjölmörgu fleiru að segja en ég ættla að segja þetta gott í bili.  Bið að heilsa ykkur öllum og vona að þið hafið það sem allra allra best.  Skrifa svo aftur eftir nokkra mánuði, þá verður örugglega frá einhverju að segja ;) />

Kveðja Guðmann. />


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 20:58:02 / gudmann_b

Sjórinn lagður aftur á hilluna....

Jæja, nú sit ég í flugstöðinni og bíð eftir að komast í vél út á AK og hitta Dagný og krakkana. Er búinn að bíða eftir þesari stund allt of lengi að mér finnst, já hálfur mánuður er allt of mikið. Annars er allt gott að frétta, ég kom til RVK á mánudagsmorgun og hef verið að vinna á dagin um borð þangað til í morgun en þá voru áhafnarskifti. Það er nú ekki hægt að segja að maður hafi þurft að vera einmanna síðan ég kom til landsins þar sem ég hef hangið með Bjössa nær öllum frístundum og svo kom Kobbi fréttaritari Vasmó í heimsókn og tókst mér að koma einum eða tveimur öl í kallinn og það er nú meiri gestagangur en oft áður. Svo eru ma pa og eva syss komin frá Kanarí.

Jæja, þá er þetta blogg búið að vera tvo daga í vinslu og ég er búinn að hitta þau öll fjölskilduna mína hér á AK og er búinn að tala við þau gömlu í Varmó og undirbúningur er á fullu fyrir barnablessunina hans Antons á laugardaginn. En ég ættla bara að skella þessu hérna inn og reyna að skrifa aftur fljótlega frekar en að vera að teigja lopann.

Bið að heilsa öllum og hafið það sem allra best. Kveðja Guðmann.


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.03.2008 12:51:42 / gudmann_b

Sjómannslíf dimpirimp...

Jæja, þá er maður aftur farinn að velkjast um hafið, eins og þetta er nú skemmtilegt.  Er sem sagt á leiðinni frá Århus núna til færeyja.  Hér um borð er fínt að vera, veltingur viðráðanlegur, kallarnir algerir snillingar og nóg verkefni eins og maður nennir.  Ég fór út frá RVK 13.mars og þá til Þórshafnar, svaf það nú reyndar allt af mér en eftir það fórum við til Rotterdam en þar er sennilega ein stæðsta höfn í heimi, hún er endalaus, kranar og iðnaðarhúsnæði svo langt sem augað eygir.  Ég tók eina mynd þar og hún dugar fínt því þetta var iðnaður svo langt sem augað eygði, við sigldum allaveganna 20mílur (tvo tíma á ca 10mílum) framhjá hafnar svæði og það var allaveganna annað eins í hina áttina frá löndunarstaðnum.  Alveg magnað. Þaðan fórum við til Hamborgar þar sem ég tók leigubíl með skipsfélaga inn í bæ þarna og ég strunsaði í gegnum búðir í túma tvo tíma og ættlaði að kaupa mér heil ósköp en endaði að lokum algjörlega tómhentur og genginn upp að hnjám, fékk mér ekki einu sinni bjór.  Málið var nefnilega það að með þessare gengirsveiflu þá kostaði mest allt þarna úti ekki nema örlítið minna en heima, þannig að ég ættla bara að bíða þangað til að betur stendur á  að kaupa mér óþarfa.  Eftir þetta sigldum við í Århus og fórum líka í bæinn þar en það var skírdagur og allt lokað nema nokkur kaffihús. Og núna erum við á milli Århus og Þórshafnar og ég kem í RVK á þriðjudag og síðan er skotist upp á Grundartanga og loks aftur í rvk og er svo laus allra mála á fimtudagsmorgun.  Sem betur fer er netsamband um borð og ég hef getað talað við Dagnýu á msn en frelsi virkar ekki í útlöndum og ég er því sambandslaus annars. 
Viktoría missti efri framtönn í gær og var alveg ferlega ánægð með það, búin að hjakkast í henni í hálfann mánuð.  Og svo er Anton allur að dafna, er farinn að velta sér á bakið sem er víst nokkuð gott fyrir þennan aldur.
En jæja, þetta hefur nú verið ágætis nýmæli að blogga svona í firsta sinn í marga mánuði.  Hef bara ekki eirð í mér heima að blogga, alltaf nóg að gera.  En ég ættla að hætta þessu í bili og bið að heilsa ykkur öllum og vona að þið hafið það sem allra allra best.
Kveðja,  Puffsi sjómaður.

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 22:56:27 / gudmann_b

Anton Orri Guðmannson

Já það er að vanda margt að frétta og ber þar lang hæðst að við erum nú orðin vísitölufjöldkylda!!! Já Anton Orri er fæddur þann 11.des stór og stæðilegur drengur. Það eru komnar nokkrar myndir inn á barnaland. Anton er bara rólegur og sefurmest allan daginn, alveg þægur með eindæmum. Ég hefði nú átt að vera búinn að blogga fyrir löngu en Dagný er bara alltaf búin að segja allt fréttnæmt þannig að eftir sit ég með eitthvað bull og rugl. Er að spá í að hafa næsta blogg bara Forward á bloggið hennar Dagnýar : www.blogcentral.is/rut_86

Annars er það að frétta í bull fréttum að nú verður haldið bekkjar hittingur annan í jólum, örugglega allt út af síðasta bloggi mínu ;) Maður ættlar nú að reyna að mæta, ættli það endi ekki með því, þetta er bara svo ómögulegur tími fyrir okkur að þurfa að rífa sig upp úr jólasælunni til að skrölta á toyotu druslunni norður yfir heiðar en það verður nú sannarlega gaman að hitta fjölskilurnar okkar og gömlu skólafélagana.

jæja, verð að fara að halda jól eða eitthvað. Bið að heilsa öllum og gleðileg jól.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 18:04:35 / gudmann_b

Nóvember

Já, það er frá mörgu að segja og margt um að vera hjá okkur hérna í Grafarholtinu.  Þar ber að sjálfsögðu hæst að von bráðar fer Dagný að fara að eiga, er sett þann 30.nov en við erum nú að vona að þetta gerist nú bara sem fyrst enda er löng bið senn á enda eftir að sjá krílið.  Ég held í alvörunni að ég hafi ekki áður á æfinni verið jafn vel undirbúinn fyrir neitt eins og þessa fæðingu, allt reddí hérna heima, myndavélar í töskum, Marsibil frækna ættlar að redda Viktoríu á meðan við verðum á sjúkrahúsinu... það eina sem klikkaði var í gærkvöld þegar Dagný fór að sýna mér myndir úr alvöru fæðingu og ég verð nú að viðurkenna að þetta er svoldið skuggalegt að sjá, en það verður nú allt öðruvísi að upplifa þetta svona persónulega :)  hlakka bara til að fá og sjá krílið.  Viktoría tjáir sig nú lítið um málið en er staðráðin í að vera okkar innan handar þegar fjölgar í fjölskyldunni okkar ;) hún er alltaf jafn mikil elska.  Fórum í barnaafmæli í gær og það var alveg merkilega lítið þreytandi, merkilegt þótti mér það þó þegar farið var með borðbæn áður en ráðist var á terturnar, merkilegra þótti mér þó þegar ég hugsaði um það þá minnist ég þess aldrei að hafað heyrt borðbæn áður og hvað þá í veislu, venjulega er bara sagt: troðið nú eins og þið getið ;) étið.  
Steini Leifs hringdi í mig um daginn og spjallaði aðeins, og spurði mig að vanda hvort ég hefði heyrt eitthvað um bekkjarmót 81árgangsins úr Varmahlíðarskóla... og að vanda sagði ég nei.  Hef velt því fyrir mér af hverju ekki er það mikill áhugi hjá einhverjum að hann nenni að krúnka sig saman við gamlan bekkjarfélaga og plana hitting.  Líkleg ástæða þykir mér vera að fleiri séu uppteknir af sínu eigin núi heldur en ég og hinir séu hugsanlega á sama stað og ég var áður en ég stofnaði mína fjölskyldu, þ.e.a.s hvort eð er ekki ennþá húsum hæfir, dettur mér í hug atvik eins og þegar einhver sem ég man vel hver var, límdi öskubakka fastann á borð í Miðgarði með þeim afleiðingum að henda þurfti borðinu eftir að öskubakkinn var notaður þar sem að borðið komst ekki í uppvaskið,  og þegar við strákarnir beigluðum borð og stóla til að láta fara aðeins betur um okkur í tíma, eða bara upp á gamnið,  þegar við skammhleiptum tenglum til að losna við að hlusta á danskan upplestur eða pikkupróf og svona má endalaust upp telja... að enginn skuli nenna að rifja þetta upp er reyndar alveg merkilegt þar sem ég er alveg í krampa við að skrifa þetta.  Reyndar fór Dagný á bekkjar mót, var edrú en var rukkuð eftir á fyrir skemmdir á húsnæðinu sem einhverjir ölæðismenn höfðu framið. Það var reyndar dregið til baka að þeir sem edrú voru þyrftu að borga en  svona sögur duga alveg til að fá mig til að nenna ekki að sjá um svona lagað, en reyndar er bekkurinn hennar Dagnýar með bloggsíðu sem allir höfðu aðgang að og hægt var að fylgjast með gangi mála, koma með tillögur og þ.e.h. það væri held ég stórt skref til að byrja með.  Sæi það fyrir mér ef ég stofnaði svona síðu fyrir 81árg:  Fyrsta blogg yrði kynning á síðunni, næst frá Steina:  "eitthvað að frétta?"  Svo hef ég bara ekki samband við fleiri úr árganginum þannig að þar við sæti.   Vona bara að einhver poppulær lesi þessa hugmynd og framkvæmi hana ;)  
Jæja, ég er búinn að eyða allt of miklum tíma í þetta og ætti fyrir löngu að vera farinn að gera eitthvað gábbulegt.  En hafið það gott þangað til næst og ég bið að heilsa ykkur öllum. kveðja Guðmann.

» 5 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 03:56:45 / gudmann_b

Ónefnd færsla

Ég er búinn að vera svoldið upptekinn af myspace.com/gudmann_b þannig að bloggið hefur setið á hakanum en það hefur nú svosem margt á daga mína drifið, Rósin missti framtönn í neðri góm, slasaði sig í sundi og þurfti að sauma 3 spor í hökuna, það styttist óðum í að fjölskildan okkar stækki um einn... fjórðung. Ester mágkona er núna í heimsókn, alltaf gaman að fá gesti. Ég gerði loksins eitthvað af viti í dag og fór út að hjóla með Rósinni, það snérist nú reyndar minnst um að hjóla því við drusluðum okkur upp á rólo með kvarti og mási en svo vorum við bara að leika. Og alveg það fyndnasta var þegar Viktoría hitti strák í hringekju og snéri honum hratt og lengi þangað til að hann lak út af hringekjunni og ég hélt hann væri að fara að æla, eftir smá stund og nokkrar tilraunir til að standa upp skraunglaðist hann í burtu eins og haugdrukkinn. Ég var nógu langt í burtu til að geta skellihlegið eins og asni. Svo var ég að rekast á rosalegt myndband á netinu: http://www.dailymotion.com/tag/crach/video/x3atu5_accident-porche_extreme

Magnað ef allir hafa lifað þetta af... En að öðru, hér hefur ringt eins og brjálað undan farið. Ekkert spennandi í vinnunni þar sem bleita og rafmagn fer ekkert of vel saman, var einmitt að vinna um borð í skipi um daginn, var í stiga að laga gám í annari hæð og fékk ca 400volt í hendina og öskraði eins og stelpurnar í toppmodel þáttunum! það fyndnasta sem var, var að rétt hjá mér var verið að taka upp myndina Reykjavík Rotterdam þannig að þegar Selfoss fer úr höfn í myndinni skulu þið filgjast með hvort þig heirið nokkuð angistar óp í bakrunni ;)

Jæja, ég verð að gera þetta oftar, blogga allt of sjaldan. Bið að heilsa öllum og hafið það sem allra best.


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 20:28:07 / gudmann_b

Ég fer í fríið, í fríið, í fríið.

Já, nú er aldeilis gaman hjá mér því á morgun fer ég í sumarfrí, eða allaveganna haustfrí.  Við ættlum norður á Illugastaði, eða austur á Illugastaði liggu við og vera þar í sumarbústað frá fimmtudegi til mánudags.  Það verður alveg ljúfast, heitur pottur, smá öl og við öll saman með nægan tíma! get ekki beðið.  Svo eru Arna Gerður og Bjössi Ragg að fara að gifta sig um næstu helgi og við ættlum að mæta þar og sníkja okkur veislu... og náttúrulega samgleðjast ;)

Viktoría Rós er laus við gifsið!!!! Já það var mikil gleði fyrir litluna að losna við það, fyndið að hún gengur samt enn eins og hún sé með gifsið.

Jæja, ég skrifa næst um hvað við höfðum það náðugt í bústaðnum. bæ bæ. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 21:56:02 / gudmann_b

Helgin búin... og önnur að birja!

Jæja, þá er helgin á enda runnin og hún var bara alveg... nei nú er ég alveg orðinn tapaður, ég birjaði á þessu bloggi á sunnudagskvöld og er first núna að komast í að halda áfram.  Það hefur eitt og annað á dagana drifið undan farið og ber þar hæðst að Viktoría Rós fór í aðgerð á tánni og er nú í gifsi, allt gekk vel og læknirinn var bara mjög bjartsýnn á að þetta hefði farið vel. Rósin tók þessu af stakri geðprýði og stillingu og allt snérist um video og tölvuleik sem við gáfum henni eftir aðgerðina, hels vildi hún ekki fara heim af sjúkrahúsinu en ma og pa voru orðinn svo ferlega þreitt á að sitja á þessum kirkjubekkjum sem stólarnir voru að við drifjum okkur heim eins fljótt og við gátum. Svo var það bara vinni vinna og vinna snemma á fætur seint að sofa, reyndar gerðum við margt utan vinnu, erum búin að vera að sanka að okkur barnadóti fyrir nýja erfingjann og erum búin að kaupa skiftiborði, ömmustól og þar með er þetta nú sennilega að verða búið, bara bílstóll eftir8).

jæja, ég ættla að lauma á mig einum öl sem mamma faldi hérna innst í ísskápnum þegar hún kom um síðustu helgi ;)

Ó já nú man ég svoldið skemmtilegt, við vorum að kaupa okkur videovél og nú er ég alveg í svaka stuði að myndrita allt sem gerist og það er sko eitthvað fyrir Viktoríu að vera myndefnið, hún er alveg bíó.  Við gáfum henni tölvu leik í PS2 eftir aðgerðina og  hún er alveg ótrúlega fljót að ná þessu og er alveg niður sokkin.

Jæja, nú hætti ég þessu bulli og bið að heilsa. bæ bæ 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.08.2007 13:15:42 / gudmann_b

Kominn norður.

Jæja þá er maður kominn nálægt gömlu heimahögunum, fór aðeins lengra og er nú kominn á AK en ég kom við í Varmahlíð í gær og tók rúnt á mótorhjólinu (vespunni) hennar mömmu ;) og fór að skoða iðnaðarhöllina hjá pabba en hann er kominn á fulla ferð í að koma henni í toppstand, er að leggja rafmagn í ljós og tengla og á döfinn i er að gera stiga á efrihæðina.  Allt að gerast í Varmahlíð, náði nú lítið að tala við þau því miður en Viktoría var í pössun á meðan Dagný kom og sótti mig þannig að við drifum okkur norður... norðar.  Hér er svo bara skítaveður rok og rigning en það er svo sem alltaf gaman að koma norður.

Og já ég fékk far með Bjössa norður, þúsund þakkir fyrir það Bjööörrn.

En núna stendur til að fara með Rósina út að leika í rigningunni.  Sjáumst....


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 23:21:10 / gudmann_b

70 heimskóknir í dag!!!

Hvað er að ské!!! það eru 70birtingar á síðunni minni í dag, þetta er alveg ótrúlega gaman.  Ég sem hélt að enginn læsi þetta nema Dagný...  Kannski er hún búin að skoða þetta 70 sinnum það gæti verið :D

Ég var með Bjössa í pool áðan og rót bustaði hann... eða allaveganna hafði ég fleiri vinninga ;)  Það er nefnilega svona skemmtilegur pöbb hérna rétt hjá, alveg í göngu færi þannig að einn kaldur með ætti ekki að skaða mikið :haha:  Svo á morgun fæ ég far með Bjössa norður í varmó og þaðan er svo stefnan tekin á AK í spilakvöld með Snjóu og Hafdís og fleirum, það gæti orðið gaman.  Annars er allt gott að frétta, ég mætti fjórum sinnum í röð kl 05:00 á morgnana í vinnuna þannig að ég gerði ekkert óskaplegt í vikunni, fór reyndar með bílinn hennar Evu Hildar á sölu sem er náttúrulega afrek útaf fyrir sig og svo gaf Dagný mér nýjann tölvuleik sem er mjög gaman þar sem ég er svo nískur að ég hefði aldrei tímt þessu í sjálfan mig en það er gaman að fá hann í gjöf :haha: hún gaf mér líka síðerma og stutterma boli, alltaf að dekra við mig.

Jæja, ég vona að þið haldið áfram að kíkja á síðuna mína og endilega kvittið svo ég geti kíkt á ykkar.  Kveðja, Guðmann.


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.08.2007 03:43:38 / gudmann_b

Helgin að detta á.

jæja, nú fer að nálgast helgin og mér finnst hún nú bara vera komin þar sem ég kláraði næturvinnuna á mánudag og þriðjudag og 9 tíma vinnudagur er nú eiginlega ekkert til að tala um.  Viktoría Rós fór til Steina þannig að það gæti orðið ákaflega einmannalegt en Eva syss er að koma á föstudaginn þannig að ég get gert eitthvað skemmtilegt með henni.  Við fórum í sund öll saman í dag í laugina í Mosó og Rósin var alveg bíó í rennibrautunum, já sú var sátt.  Ég fór nokkrar ferðir með henni, svaka gaman.  En talandi um nýjar rennibrautir þá skil ég ekki að í nýjar rennibrautir saman ber á Hrafnagili, Mosó og ný laug á leiðinni á Laugarvatn þá var það eins og að renna sér á ostaskerum.  Í eldri brautum er búið að kítta í fúurnar með sílikoni eða einhverju svonleiðis... það er gott.

Eva og Pétur eru hjá okkur núna og eru að fara í flug til mallorca og ættla að vera þar í 2vikur.  Vona að þau skemmti sér vel.   :)

jæja, ég er núna búinn að blogga meira á einni viku en á heilu ári held ég, sko mig. Skrifa fljótlega aftur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 00:53:53 / gudmann_b

Berjamór!!!

Já maður hefur nú varla varið sunnudegi betur í margar vikur, við tókum okkur til og fórum í berjamó hele family og Snjóa tengdó.  Við fundum helling af berjum, ég og Rósin fórum í fjallgöngu, við fengum okkur smá nesti og þetta var allt alveg ferlega gaman.  Á eftir fórum við svo rúnt og keyrðum að gullfossi og ættluðum að freista þess að hitta þar föður systur Dagnýar sem reyndist  svo ekki vera á staðnum en við fengum okkur þar eina bestu kjötsúpu sem ég hef smakkað.  Já svona eiga helgarnar að vera,

Ó já, ég fór á kynvillingaball á laugardagskvöldið, fórum fyrst í grill til Gumma og Sylju og fórum svo með Söndru og Frey á ball á Nasa sem haldið var í tilefni Gaypride helgarinnar, meira skrípasjóvið maður, kallar að kissast og aðrir í kjólum og málaðir alveg í rot.  Ég hef nú held ég aldrei fengið jafn mörg blikk og smeðjuleg bros á djamminu og þarna, hálf kjánalegt að láta einhverja kalla vera að blikka sig8|   Annars fórum við bara snemma heim, eða um tvö leitið enda Dagný edrú og mig hreinlega undraði hvað hún hélt lengi úr innan um fulla fólkið.

Það er best að hafa þetta ekki öllu lengra svo einhver nenni að lesa þetta.  Mig langar að óska Davíð til hamingju með nýju íbúðina en ég var að hjálpa honum að flitja inn á laugardaginn.  Vona að þið hafið það öll gott, kveðja Guðmann.:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 16:28:48 / gudmann_b

Í góða veðrinu RVK.

Já það er svo sannarlega gott veður núna hérna fyrir sunnan, ég er bara léttklæddur á svölunum í sólbaði að skrifa þetta núna.  Það er nú allt gott að frétta af okkur hérna, Viktoría er ekki enn búin að fá leiksskóla pláss og er held ég orðin frekar leið á að hitta enga jafningja sína.  Ég var að fá þær gleðí fréttir að Eva syss sér að spá í að kíkja í heimsókn um næstu helgi, vona að það gangi nú eftir, þetta er síðasti séns fyrir hana áður en skólinn birjar. 

Það er nú svo sem ekkert rosalegt að frétta núna, við höfum það gott hérna í grafarholtinu og ég er alltaf að vinna en það gengur bara vel þar.  Dagný var svo góð við mig í gær, ég skelti mér í sturtu fyrir kvöld mat og þegar ég kom aftur var eldhúsborðið eins og á fim stjörnu veitingastað, kjúklingaréttur, kerti og til að setja punktinn yfir i-ið var það ískaldur öl í glasi fyrir mig.  Jæja það væri nú svo sem margt fleira hægt að segja frá en ég þarf að þjóta.

Bið að heilsa öllum sem lesa þetta, kveðja Guðmann.


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 16:45:55 / gudmann_b

Margar og góðar fréttir!!!

Heil og sæl öllsömul.  Já það hefur sko margt á daga mína drifið síðan í síðasta bloggi.  Það sem ber hæst eru náttúrulega flutningarnir þar sem núna erum við flutt úr Garðabænum og komin í Grafarholtið.  Segja má að ég hafi bara rétt gripið í þetta eftir vinnu þar sem að Dagný pakkaði öllu og svo hjálpaði Jóna okkur að taka upp úr kössum og svo hjálpuðu Marsibil og Guðjón okkur að flitja og náttúrulega Jóna líka og vil ég þakka þeim endalaust mikið fyrir ákafleg mikla hjálp, þau voru alveg meiriháttar dugleg, og skemmtileg eins og alltaf :D.  Íbúðin er frábær og hlakkar mig alveg rosalega til að sofa þar heila nótt,  þær voru hálf stuttar þessar tvær nætur sem ég hef sofið þar og um þessa helgi fórum við norður til að sækja Viktoríu Rós og svo Dagný og vinkonur Örnu fóru til að gæsa hana.  Á meðan fórum við Viktoría í Varmahlíð og í bústaðinn ömmu og afa og gistum eina nótt.  Það var alveg rosalega gaman hjá okkur og Rósin var alveg í sjöunda himni að ég held.  Ég sótti svo Dagný á AK og við gistum í varmó mánudagsnóttina. 

Rósin var rosalega spennt að sjá nýja húsið og rúmið og allt saman.  Jæja, ég verð að fara að hætta þessu.

Langar að þakka fjölskildunni minni í sveitinni kærlega fyrir frábæra helgi, sé ykkur vonandi öll sem first aftur.

Kveðja Guðmann.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill